12 ný smit í Eyjum

Um helgina hafa 12 ný smit bæst við í Vestmannaeyjum og greindust allir nema einn í skimun Íslenskrar erfðagreiningar.

Nú er búið að rannsaka 1.200 af þeim 1.500 sýnum sem voru tekin í skimun ÍE. Af þeim sem greindust nú voru fjórir í sóttkví og nokkrir einkennalausir. Heildarfjöldi smita í Vestmannaeyjum er orðinn 95. 14 hafa náð bata. Í sóttkví eru nú skráðir 157.

Enn er brýnt fyrir Eyjamönnum að fara að öllum reglum enda er eina vörnin gegn smiti að takmarka samskipti og umgangast eins fáa og mögulegt er. Þá er þeim sem vantar aðstoð eða upplýsingar bent á að hringja í hjálparsíma Rauða krossins 1717, samkvæmt facebooksíðu lögreglunnar í Vestmannaeyjum. 

 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert