Akranes ræðst í aðgerðir fyrir þrjá milljarða

Samstaða hefur ríkt innan bæjarstjórnar Akraness um aðgerðirnar.
Samstaða hefur ríkt innan bæjarstjórnar Akraness um aðgerðirnar. mbl.is/Árni Sæberg

Greiðslufrestir, lækkuð gjöld, fjölgun atvinnutækifæra og aukin fjárveiting til framkvæmda eru á meðal þeirra aðgerða sem Akraneskaupstaður kynnti í dag til viðspyrnu vegna COVID-19. Aðgerðirnar eru fjórtán talsins og skiptast í þrjá meginhluta, varnir, vernd og viðspyrnu. Heildarumsvif þeirra nema 3.380 milljónum króna. 

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness, segir að bærinn sé vel undir það búinn að takast á við efnahagslegt áfall sem þetta. 

„Akraneskaupstaður hefur á undanförnum árum lagt mikið upp úr því að vera með vel rekið sveitarfélag. Við skuldum lítið. Skuldaviðmiðið okkar er 27% sem má að hámarki vera 150%. Við eigum tvo milljarða af handbæru fé.“

Guðlaug á Akranesi er orðinn geysivinsæll viðkomustaður innlendra sem erlendra …
Guðlaug á Akranesi er orðinn geysivinsæll viðkomustaður innlendra sem erlendra ferðamanna. mbl.is/Ragnar Axelsson

Hafa nú þegar fjárfest fyrir 1.500 milljónir

Akraneskaupstaður stendur nú í miklum fjárfestingum sem hófust áður en kórónuveiran fór að breiða úr sér hérlendis.

„Við erum í metfjárfestingu núna á þessu ári sem voru þegar ákveðnar. Fjárfestingum upp á 1.500 milljónir og ætlum að gefa enn frekar í. Við erum að undirbúa enn frekari aðgerðir og ætlum að kynna þær eftir páska og munum þá tilkynna frekari fjárfestingar til þess að verja störf í samfélaginu,“ segir Sævar. 

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness.
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Samstaða hefur ríkt innan bæjarstjórnar Akraness um aðgerðirnar en þær má finna hér að neðan:

  1. Frestur verður á greiðslu fasteignagjalda íbúða- og atvinnuhúsnæðis
  2. Frestur á innheimtu gatnagerðargjalda og tengdum þjónustugjöldum
  3. Virkt samtal milli bæjarstjórnar, íbúa og fyrirtækja
  4. Gjöld leikskóla, grunnskóla og frístundar í Þorpinu verða lækkuð í samræmi við notkun á þjónustu
  5. Gildistími þrek- og sundkorta framlengdur
  6. Sveigjanleiki aukinn í innheimtu og gjaldfrestum
  7. Efling velferðarþjónustu
  8. Stuðningur til heilsueflingar og til íþróttastarfs menningar og lista
  9. Markaðsátak Akraness
  10. Aukin fjárveiting til framkvæmda og til viðhaldsverkefna
  11. Störf tryggð með uppbyggingu húsnæðis til leigu fyrir aldraða, fatlaða og á almennum markaði
  12. Fjölgun atvinnutækifæra
  13. Nýsköpun og tækni í innleiðingu rafrænnar þjónustu
  14. Þátttaka í markaðsátaki stjórnvalda og Íslandsstofu til „Eflingar ferðaþjónustunnar 2020“
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert