Gylfi Arnbjörnsson stýrir samhæfingarhópi

Gylfi Arnbjörnsson, fyrrverandi forseti ASÍ, stýrir starfi hópsins.
Gylfi Arnbjörnsson, fyrrverandi forseti ASÍ, stýrir starfi hópsins. mbl.is/Hanna

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hafa stofnað samhæfingarhóp sem skal skoða stöðu atvinnuleitenda og námsmanna og atvinnu- og menntaúrræði þeirra við þær breyttu aðstæður sem nú eru uppi í íslensku samfélagi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu.

Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur og fyrrverandi forseti ASÍ, verður starfsmaður hópsins og mun stýra vinnu hans.

Hópnum er ætlað að sinna eftirfarandi verkefnum:

  • Skilgreina atvinnugreinar sem verst verða úti og hvernig megi mæta því með fjölbreyttu og viðeigandi námi og þjálfun.

  • Kortleggja námsframboð og námsþjónustu sem nú er í boði innan framhaldsskóla, háskóla og framhaldsfræðslu, hvernig þau nýtast til að mæta breyttum aðstæðum og hvernig megi auka aðgengi að kynningu og ráðgjöf um nám og störf. 

  • Leggja mat á hvar sérstakra námsaðgerða er þörf með tilliti til aldurs, uppruna, búsetu og efnahags.

  • Skoða hvernig megi tryggja og útfæra réttarstöðu einstaklinga, s.s. til atvinnuleysisbóta samhliða námi og töku námslána, þar sem horft er til jafnræðissjónarmiða. Meta stöðu námsmanna með tilliti til sumarstarfa.

„Áhrifa COVID-19 faraldursins gætir í öllum atvinnugreinum og þegar hafa verið kynntar aðgerðir sem miða að því að styðja á fjölbreyttan hátt við vinnumarkaðinn, þar á meðal hlutastarfaleið og trygging launa fyrir sóttkví sem fyrirskipuð er af heilbrigðisyfirvöldum. Ljóst er að þau úrræði falla í sumum tilfellum ekki vel að hlutskipti íslenskra námsmanna. Atvinnuleysi hefur aukist gífurlega og brýnt að mæta menntunar- og virkniþörf atvinnuleitenda til viðhalda, bæta og breyta færni vinnuaflsins til sóknar þegar atvinnuástand batnar,“ segir í tilkynningu.

Brýnt að eyða óvissu

Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra segir námsmenn marga hverja uggandi um sinn hag og brýnt að sem mestri óvissu sé eytt.

„Markmið okkar aðgerða verður að styðja markvisst við þá, til dæmis í gegnum Lánasjóð íslenskra námsmanna og Nýsköpunarsjóð námsmanna, ásamt því að nýta menntakerfið til þess að efla og styrkja nám og þjálfun í þeim atvinnugreinum sem mögulega verða hvað verst úti. Menntun eflir samfélög og stuðlar að framþróun þeirra, menntun verður þannig mikilvægur liður í viðspyrnu okkar til framtíðar.“ 

Samráð verður haft við ýmsa aðila í samhæfingarhópnum. Munu stjórnvöld kalla eftir tilnefningum frá Vinnumálastofnun, Alþýðusambandi Íslands, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, fjármálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Bandalagi háskólamanna, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja auk fulltrúa framhaldsfræðslu, skólameistara framhaldsskóla og rektora háskóla, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Leikn og Landssamtökum íslenskra stúdenta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert