Rýma iðnaðarhús og ábúendur yfirgefa sveitabæ

Iðnaðarhús á Ísafirði hafa verið rýmd vegna hættu á snjóflóði. …
Iðnaðarhús á Ísafirði hafa verið rýmd vegna hættu á snjóflóði. Ofanflóðavarnir Snjóflóðavarnir á Ísafirði. mbl.is/Hallur Már

Óvissustig vegna snjóflóðahættu hefur verið í gildi á norðanverðum Vestfjörðum frá því í gærkvöldi. Í nótt féllu snjóflóð á nokkrum stöðum, meðal annars yfir veginn um Súðavíkurhlíð. Í dag klukkan 10:18 féll breitt snjóflóð í Súgandafjörð gegnt Suðureyri. Flóðið ruddist út í sjó og lítil flóðbylgja fylgdi en lágstreymt var.

Á Ísafirði hefur iðnaðarhúsnæði verið rýmt og sorpmóttakan í Funa er lokuð vegna snjóflóðahættu. Einnig var fólk beðið að yfirgefa einn sveitabæ í Bolungarvík í gærkvöldi.

Í gær var austnorðaustan hríðarveður og talsverð snjósöfnun í fjöll, sérstaklega þegar leið á kvöldið. Um miðja nóttina hlánaði á láglendi en áfram hefur verið frost í efri hluta fjalla.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert