Flaug með öndunarvél til Ísafjarðar

TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar.
TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, flaug með öndunarvél til Ísafjarðar í hádeginu í dag.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði samband við Landhelgisgæsluna og óskaði eftir því að flogið yrði með öndunarvélina vestur á firði, að því er Gæslan greinir frá.

Áhöfnin á TF-SIF var þá stödd á Reykjavíkurflugvelli og hafði samband við áhöfnina á varðskipinu Þór sem gat gefið greinargóðar upplýsingar um veðuraðstæður í Ísafjarðardjúpi fyrir flugið.

Flugvélin lenti á flugvellinum á Ísafirði um hádegisbil þar sem öndunarvélin var afhent.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert