Setja fjóra milljarða í Isavia og flýta framkvæmdum

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur. mbl.is/Eggert

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að auka við hlutafé í Isavia ohf. um fjóra milljarða króna. Þetta var kynnt á ríkisstjórnarfundi í dag, en framlagið er með því skilyrði að ráðist verði í innviðaverkefni á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að annars vegar sé um að ræða verkefni sem fyrirhuguð voru á yfirstandandi ári en hefði þurft að fresta vegna þess tekjufalls sem félagið hefur orðið fyrir og hins vegar flýtingu á öðrum mannaflsfrekum framkvæmdum sem fyrirhugaðar voru á árunum eftir 2023.

Þá kemur fram að áætlaður fjöldi nýrra starfa vegna framkvæmdanna nemi 50-125 fyrir hvern mánuð fram á mitt ár 2021. „Ákvörðunin er í samræmi við aðgerðir stjórnvalda við að auka við fjárfestingar til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu með arðbærum fjárfestingum sem auka eftirspurn eftir vinnuafli,“ segir í tilkynningunni.

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Haft er eftir Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra að aðstæður kalli á hraða ákvarðanatöku. „Síðustu daga höfum við séð okkar svörtustu spá um atvinnuleysi raungerast sem kallar á hraða en jafnframt upplýsta ákvarðanatöku.“ Segir hann skynsamlegt að halda áfram framkvæmdum á flugvellinum til að standa vörð um samkeppnishæfni Íslands þegar komi að ferðamennsku. „Þess vegna höfum við tekið ákvörðun um að leggja félaginu til aukið hlutafé til að það fái svigrúm til að ráðast í verkefni sem hefði að öðrum kosti verið frestað í ljósi aðstæðna.“

Haft er eftir Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra Isavia, að fjármagnið geri félaginu kleift að fara í verkefni sem annars hefði ekki verið svigrúm fyrir á þessari stundu. „Hún býr ekki eingöngu til ný störf í framkvæmdunum sjálfum heldur getum við vegna hennar staðið vörð um fjölda starfa innan Isavia. Innspýtingin mun einnig hafa jákvæð áhrif á Suðurnesjunum því margir sem þar búa starfa hjá okkur auk þess að til verður fjöldi afleiddra verkefna á svæðinu. Þetta er afar mikilvægt fyrir Isavia því það mun hjálpa okkur að koma sterkari út úr þessum erfiðu tímum og gera flugvöllinn enn samkeppnishæfari til framtíðar.“

Helmingur fjárhæðarinnar fer til verkefna sem tengjast hönnun og það sem eftir stendur verður nýtt í framkvæmdir. Miðað er við að viðbótarfjármögnunin muni nýtast breiðum hópi fyrirtækja.

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.

Þá mun þessi aðgerð opna fyrir möguleika á frekari framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli, fyrr en ella, upp á ríflega þrjá milljarða króna. Heildarumfang fjárfestinga sem tengjast þessari hlutafjáraukningu getur því numið ríflega sjö milljörðum króna yfir tveggja ára tímabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert