Borgin setur upp sérstaka móttöku

Reykjavíkurborg rekur þegar nokkur neyðarskýli á höfuðborgarsvæðinu en vegna kórónuveirufaraldursins …
Reykjavíkurborg rekur þegar nokkur neyðarskýli á höfuðborgarsvæðinu en vegna kórónuveirufaraldursins fær hún aukið fjármagn til þess að hjálpa heimilislausum í vanda. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Komið verður á fót sérstakri móttöku opinni allan sólarhringinn fyrir þá sem af ýmsum ástæðum eiga ekki í nein hús að venda vegna COVID-19-faraldursins, einkum þá heimilislausa. Móttakan er liður í samstarfsverkefni félagsmálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar, sem kostar 85 milljónir og er til fjögurra mánaða.

Borgin mun þá bjóða upp á sérstakt skammtímahúsnæði fyrir þá sem eru í húsnæðisvanda vegna faraldursins.

Á undanförnum vikum hefur vaxandi hópur einstaklinga leitað til félagsþjónustu sveitarfélaga eftir fjárhagsaðstoð og aðstoð við húsnæðisleit. Um er að ræða fólk sem hefur dvalist erlendis, hjá ættingjum eða vinum eða í öðru tímabundnu húsnæði og hefur lent í fjárhags- og húsnæðisvanda vegna COVID-19, til dæmis vegna hættu á smiti í núverandi húsnæði, eða fólk sem þarf að fara í sóttkví, missir samastað sinn og leitar til sveitarfélags síns eftir húsnæðisúrræðum. Stundum getur þessar aðstæður borið brátt að og þörf verið fyrir úrræði strax.

Reykjavík hefur, að því er segir í tilkynningu um málið, þjónustað langstærstan hluta heimilislausra með fjölþættan vanda hér á landi og starfrækir þrjú neyðarskýli. Samstarfið þýðir að borgin mun hafa svigrúm til að taka við öllum þeim sem þurfa þjónustuna á landsvísu óháð lögheimili. Móttakan mun tengja viðkomandi einstaklinga við félagsráðgjafa í því sveitarfélagi þar sem einstaklingurinn á lögheimili en viðkomandi getur dvalið í skammtímahúsnæðinu þar til mál hans eru komin í réttan farveg hjá því sveitarfélagi sem um ræðir. Rætt hefur verið við Akureyrarbæ um að grípa til svipaðra aðgerða í framhaldinu sé þörf og tilefni til.

Þjónustuaðilar hafa síðan einnig á síðustu vikum fundið fyrir auknu álagi og eðlisbreytingu mála hjá heimilislausu fólki með fjölþættan vanda í kjölfar COVID-19-faraldursins. Flest þau úrræði sem eru í boði fyrir þennan hóp eru fullnýtt og því hefur félagsmálaráðuneytið hafið samstarf við Reykjavíkurborg um eflingu þjónustu við þennan hóp.

Félagsmálaráðherra og borgarstjóri skrifa undir samstarfsverkið á fjarfundi.
Félagsmálaráðherra og borgarstjóri skrifa undir samstarfsverkið á fjarfundi. Ljósmynd/Aðsend

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segir að álagið á félagsþjónustuna hafi aukist mikið vegna faraldursins. „Það er því gríðarlega mikilvægt að við stígum þar inn og aukum þau úrræði tímabundið sem standa til boða. Í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg munum við því efla þjónustu næstu fjóra mánuði við heimilislausa og þá sem eiga í tímabundnum húsnæðisvanda,“ segir hann.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir mikilvægara en áður að mæta þessum viðkvæmu hópum. „Heimilislausir og jaðarsettir einstaklingar verða oft út undan á tímum sem þessum. Samvinna borgarinnar og ráðuneytisins er afar mikilvæg í þessum málaflokki – sérstaklega á tímum þessa skæða heimsfaraldurs. Einmitt núna þurfum við að vinna saman og standa saman.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert