„Mikill missir að Þorsteini“

Hanna Katrín Friðriksson.
Hanna Katrín Friðriksson. mbl.is/Hari

Hanna Katrín Friðriksson, formaður þingflokks Viðreisnar, segir að það hafi komið sér á óvart þegar hún frétti af því að Þorsteinn Víglundsson, varaformaður flokksins, ætlaði að hætta þingstörfum.

„Það er ekkert launungarmál að það er mikill missir að Þorsteini fyrir þingflokk Viðreisnar og fyrir Alþingi allt að mínu mati. Hann hefur verið einn öflugasti þingmaðurinn,“ segir Hanna Katrín. Hún nefnir að það hafi lengi verið talið erfitt fyrir þingmenn að fóta sig í atvinnulífinu að lokinni þingmennsku en þannig sé það ekki í þessu tilfelli því Þorsteinn hafi verið sóttur á þing.

„Við búum vel í Viðreisn. Við erum með öflugt fólk á listum og það kemur maður í manns stað,“ bætir hún við en Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara, mun taka sæti Þorsteins á þingi.

Hanna Katrín segir að Þorsteinn verði áfram sterkur bakhjarl fyrir flokkinn og að hún eigi eftir að sakna hans verulega úr þingflokknum, enda góður vinur og einn öflugasti þingmaðurinn. „Ég veit af honum á hliðarlínunni. Ég óska honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.“

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

„Gaman af krefjandi verkefnum“

Í tilkynningu frá Viðreisn segir Þorbjörg Sigríður: „Ég hef gaman af krefjandi verkefnum, kem úr þannig starfsumhverfi og finnst spennandi að fá núna að takast á við verkefni Alþingis. Ég trúi á að hlutirnir sem máli skipta í lífinu eigi það sameiginlegt að vera krefjandi. Þingflokkur Viðreisnar er skemmtilegur og sterkur hópur, sem mér finnst frábært að verða núna hluti af. Auðvitað er síðan sérstakt að taka sæti á Alþingi með þau verkefni sem koma í kjölfar þess að faraldur er að breyta heiminum. Mér hefur fundist samstaða og samkennd einkenna fyrstu skref. Og ætla að leggja mitt af mörkum með þessi stef að leiðarljósi og frjálslyndar áherslur Viðreisnar.“

Þorbjörg er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og lauk einnig framhaldsnámi í lögfræði frá Columbia í New York. Hún var aðstoðarmaður Þorsteins Víglundssonar þegar hann gegndi embætti félags- og jafnréttismálaráðherra. Þorbjörg er jafnframt pistlahöfundur á Fréttablaðinu.

Þorsteinn Víglundsson á Alþingi.
Þorsteinn Víglundsson á Alþingi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kveður með söknuði

Þorsteinn Víglundsson segist í sömu tilkynningu hafa starfað í stjórnmálum í tæp fjögur ár fyrir Viðreisn og að hann sé þakklátur fyrir traustið sem honum hefur verið sýnt. „Ég hef starfað í stjórnmálum í tæplega fjögur ár fyrir Viðreisn og er þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt. Ég kveð með söknuði allt það góða fólk sem ég hef starfað með, um leið og ég óska því velfarnaðar. Ég er stoltur af því að hafa tekið þátt í uppbyggingu Viðreisnar og hlakka til að fylgjast með flokknum mínum vaxa og dafna enn frekar. Viðreisn hefur fest sig í sessi sem öflugur og skýr valkostur fyrir frjálslynt fólk.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir á Alþingi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir á Alþingi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Góður liðsfélagi farinn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, hefur þetta að segja um brotthvarf Þorsteins: „Það er auðvitað vont að sjá góðan liðsfélaga fara af þingi en á sama tíma spennandi að fá öfluga og reynslumikla manneskju sem ég veit að hefur bæði kraftinn og hjartað á réttum stað. Þingflokkur Viðreisnar vinnur áfram  þétt saman að þeim mikilvægu málum sem á okkur brenna. Við Þorsteinn höfum átt langt og farsælt samstarf og hann er einn af mínum nánari vinum. Um leið og ég sé eftir Þorsteini af þinginu hlakka ég til samstarfs við Þorbjörgu, sem nú kemur inn í þingflokkinn með mikilvæga reynslu sem ég veit að mun nýtast okkur,“ segir hún í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert