Þyrlusveit leitaði fjórhjólamanna í nótt

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF GRO.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF GRO. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar (LHG) leitaði tveggja fjórhjólamanna við Drangajökul eftir miðnætti í nótt, segir í tilkynningu frá LHG. Eftir tæplega klukkustundar leit var upplýst að mennirnir væru fundnir og hélt þyrla LHG þá aftur til Reykjavíkur.

Björgunarsveitir einnig kallaðar út

Segir í tilkynningu að þegar æfingu þyrlusveitar og áhafnar varðskipsins Þórs var nýlokið í Ísafjarðardjúpi hafi borist beiðni frá fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra um að þyrla Landhelgisgæslunnar færi til leitar að fjórhjólamönnunum sem áttu að hafa farið frá Steingrímsfjarðarheiði í átt að Drangajökli fyrr um daginn. Björgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru einnig kallaðar út til leitar.

Flogið var frá Ísafirði yfir Snæfjöll, inn Hrafnsfjörð yfir Skorarheiði og niður í Furufjörð og inn í Reykjafjörð. Leitað var á Fossadalsheiði, ofan í Bjarnarfjörð, inn að Drangajökli og til suðausturs um heiðina. Aðstæður til leitar voru góðar með nætursjónaukum sem alla jafna eru notaðir við leit sem þessa í myrkri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert