1.415 sýni og öll neikvæð

Frá Egilsstöðum.
Frá Egilsstöðum.

Niðurstöður úr sýnatöku Heilbrigðisstofnunar Austurlands í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu um síðustu helgi liggja nú fyrir. Tekin voru 1.415 sýni og reyndust þau öll neikvæð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi.

Þetta eru góðar fréttir en undirstrika um leið mikilvægi þess að halda vöku sinni og einbeitingu. Lítið má út af bregða eins og dæmin sanna og áréttað hefur verið í fjölmiðlum meðal annars og af stjórnendum heilbrigðisstofnana nú nýverið. Förum því varlega og fylgjum leiðbeiningum áfram og líkt og við höfum gert fram til þessa.

Aðeins sjö smit hafa komið upp á Austurlandi og ekkert nýtt smit hefur komið upp í níu sólarhringa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert