Rannsókn í fullum gangi

Hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík.
Hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík.

Rannsókn lögreglu vegna gruns um refsiverð brot konu sem starfaði á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík og kom þangað í gegnum bakvarðasveit er í fullum gangi. Þessar upplýsingar, en engar frekari, fengust hjá lögreglunni á Ísafirði. Má hins vegar búast við frekari upplýsingum þegar líða tekur á daginn. 

Konan kom inn í gegnum Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, að sögn Gylfa Ólafssonar, forstjóra stofnunarinnar. Þrjár leiðir eru fyrir fólk til að bjóða sig fram í bakvarðasveitirnar en fólk getur boðið sig fram við heil­brigðisráðuneyt­ið, fé­lags­málaráðuneyt­ið eða við viðkom­andi stofn­un, eins og var í þessu tilviki.  

Konan er grunuð um að hafa falsað skjöl um menntun og starfsskilyrði og þjófnað eða tilraun til þjófnaðar á lyfjum.

Nokkrar ábendingar bárust um meint brot konunnar, að sögn Gylfa.

Gylfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Gylfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert