Ráðast í aðgerðir til að stöðva olíuleka úr El Grillo

El Grillo var sökkt innarlega í Seyðisfirði. Olíumengun hefur borist …
El Grillo var sökkt innarlega í Seyðisfirði. Olíumengun hefur borist frá flakinu og þykir heimamönnum hún heldur hafa aukist í seinni tíð. mbl.is/Bogi Þór Arason

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, um að grípa til aðgerða til að stöðva olíuleka úr skipsflakinu El Grillo sem liggur á botni Seyðisfjarðar. Áætlaður kostnaður við þær nemur 38 milljónum króna.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Ráðist verður í aðgerðirnar á næstu vikum.

El Grillo er 10 þúsund lesta breskt olíubirgðaskip sem þýskar flugvélar sökktu árið 1944. Olíu var dælt úr skipinu árið 1952 og aftur árið 2001 en þá náðust rúm 60 tonn úr flakinu. Útreikningar frá þeim tíma bentu til þess að hátt í 15 tonn af olíu væru enn í flakinu.

Síðan þá hefur reynslan sýnt að olía leki úr flakinu þegar sjór hlýnar á sumrin. Í könnunarleiðangri Landhelgisgæslunnar í október á síðasta ári kom í ljós að töluverður olíuleki kom úr opi við olíutanka skipsins sem myndast hafði vegna tæringar.

Aðgerðirnar fela það í sér að loka opinu með því að steypa yfir það. Þá verður loka komið fyrir í steypunni sem verður hægt að nýta síðar til að dæla úr tankinum. Verkefnið verður í höndum Landhelgisgæslunnar.

El Grillo er á botni Seyðisfjarðar.
El Grillo er á botni Seyðisfjarðar. Mynd/mbl.is
Olía frá El Grillo sést hér við höfnina í Seyðisfirði. …
Olía frá El Grillo sést hér við höfnina í Seyðisfirði. Myndin var tekin í fyrra og sýnir ferjuna Norrænu í höfn. mbl.is/Þorgeir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert