Stálu bíl af manni sem kom fólkinu til aðstoðar

Þremenningarnir festu bíl sinn og veittust að manni sem hugðist …
Þremenningarnir festu bíl sinn og veittust að manni sem hugðist aðstoða fólkið og tóku bíl hans traustataki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Vesturlandi handtók tvo karlmenn og eina konu í gær klukkan 22:30 á Vestfjarðavegi við Sælingsdal. Fólkið var á tveimur bifeiðum, sem báðum hafði verið stolið fyrr um kvöldið í Reykhólasveit. Fólkið hefur verið flutt í fangageymslur lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu í Reykjavík og munu yfirheyrslur yfir því fara fram síðar í dag. Þetta kemur fram á facebooksíðu lögreglunnar. 

Skömmu áður en lögreglan kom á vettvang hafði ökumaður velt annarri bifreiðinni en þó ekki hlotið alvarleg meiðsl. 

Fólkið er grunað um að hafa veist að manni sem ætlaði að koma því til aðstoðar fyrr um kvöldið í Gufudal, en bifreið þremenninganna hafði fest þar. Fólkið er grunað um að hafa valdið manninum áverkum, auk þess að stela bifreið hans. Á leið fólksins fram hjá bænum Klukkufelli í Reykhólasveit mun það hafa tekið aðra bifreið ófrjálsri hendi.

Ökumenn bílanna eru grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum vímugjafa. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert