Róbert Spanó nýr forseti Mannréttindadómstóls Evrópu

Róbert R. Spanó tekur við forsetastólnum 18. maí.
Róbert R. Spanó tekur við forsetastólnum 18. maí. mbl.is/Ómar Óskarsson

Róbert Ragnar Spanó, dómari við Mannréttindadómstóll Evrópu, var í dag kjörinn forseti dómstólsins. Róbert tekur formlega við forsetastólnum af Linos-Alexandre Sicilianos frá Grikklandi 18. maí.

Róbert er 47 ára gamall og hefur starfað sem dómari við Mannréttindadómstól Evrópu í tæp sjö ár. Hann var kjörinn varaforseti á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert