Lýsi hættir að auglýsa „fríar fitusýrur og þorskalýsi“

Matvælastofnun hefur gert athugasemdir við kynningu á vöru frá Lýsi …
Matvælastofnun hefur gert athugasemdir við kynningu á vöru frá Lýsi þar sem gefið til kynna að neysla vörunnar gæti verið gagnleg við að eyðileggja hjúpaðar veirur, svo sem herpes, RS og kórónuveirur, og fyrirbyggja smit.

Matvælastofnun hefur gefið Lýsi hf. fyrirmæli vegna notkunar heilsufullyrðinga við markaðssetningu fæðubótarefnisins „Fríar fitusýrur og þorskalýsi“. Tilefni fyrirmælanna er að við markaðssetningu fyrirtækisins var gefið til kynna að neysla vörunnar gæti verið gagnleg við að eyðileggja hjúpaðar veirur, svo sem herpes, RS og kórónuveirur, og fyrirbyggja smit.

Fyrirtækið hefur upplýst Matvælastofnun um að það hafi hætt kynningu á vörunni á vef sínum og upplýst söluaðila um að þeim beri að fjarlægja slíkt kynningarefni, að því er segir í tilkynningu MAST. 

Einungis má nota heilsufullyrðingar við markaðssetningu matvæla sem eru á lista Evrópusambandsins yfir leyfilegar fullyrðingar. „Upplýsingar sem gefa til kynna að neysla matvöru hafi áhrif á heilsu er heilsufullyrðing í skilningi laganna, hvort sem upplýsingarnar komi fram á matvörunni sjálfri eða eru notaðar við markaðssetningu hennar,“ segir í tilkynningu MAST. 

Stofnunin varaði nýlega við vörum sem eiga að styrkja ónæmiskerfi líkamans og koma í veg fyrir sýkingar, m.a. af völdum kórónaveira.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert