Rannsaka líðan þjóðarinnar

Vísindamenn Háskóla Íslands hafa í samstarfi við embætti landlæknis og sóttvarnarlæknis hrundið af stað vísindarannsókninni Líðan þjóðar á tímum COVID-19.

Markmiðið er að afla sem mestrar þekkingar á áhrifum faraldursins á líðan og lífsgæði landsmanna til þess m.a. að geta í framtíðinni brugðist enn betur við áhrifum samfélagslegra áfalla á borð við heimsfaraldur. Öllum einstaklingum eldri en 18 ára sem hafa rafræn skilríki er boðið að taka þátt í rannsókninni á vefsíðunni lidanicovid.is.

Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid eru verndarar rannsóknarinnar.

„Óhætt er að segja að COVID-19-faraldurinn sé ein stærsta áskorun sem þjóðir heims hafa staðið frammi fyrir en hún hefur senn gríðarleg áhrif á almannaheill og efnahag. Íslendingar hafa ekki farið varhluta af þessum samfélagshremmingum og því telja vísindamenn mikilvægt að varpa sem bestu ljósi á áhrif faraldursins á íslensku þjóðina.

Ætlunin er m.a. að skoða hvaða áhrif kórónuveirufaldurinn hefur á einkenni streitu, sálræna líðan og almennan lífsstíl landsmanna en jafnframt að kanna hvort saga um sjúkdóma og aðra áhættuþætti, hugsanleg eða staðfest COVID-19-smit tengist verri líðan og lífsgæðum. Mikilvægt er einnig að kortleggja hvaða þættir hafa stutt við góða líðan og heilsufar einstaklinga og fjölskyldna á þessum óvissutímum. Þá vonast vísindahópurinn til þess að varpa ljósi á það hvort sterk streituviðbrögð á tímum COVID-19 hafi víðtækari áhrif á heilsufar til lengri tíma. Öll þessi vitneskja er mikilvæg yfirvöldum og getur nýst við skipulag heilbrigðisþjónustu og almannavarna á tímum samfélagslegra áfalla á borð við heimsfaraldur COVID-19.

Að rannsókninni stendur reyndur hópur vísindamanna undir forystu Unnar Önnu Valdimarsdóttur, prófessors við læknadeild Háskóla Íslands. Rannsóknin er hluti af alþjóðlegu rannsóknarverkefni á þessu sviði,“ segir í fréttatilkynningu.

„Íslendingar eru almennt jákvæðir fyrir þátttöku í vísindarannsóknum en líklega hefur þjóðin aldrei verið jafn meðvituð um mikilvægi vísinda og akkúrat núna. Heimsfaraldur COVID-19 er samfélagslegt áfall á heimsvísu en við Íslendingar höfum hér einstakt tækifæri til að skilja betur hvaða þættir hjálpa og hvaða þættir eru íþyngjandi í þessum óvenjulegu aðstæðum,“ segir Unnur í fréttatilkynningu.

„Við finnum fyrir auknu álagi í samfélaginu. Fjöldi erinda til Heilsugæslunnar hefur aukist, meðal annars vegna kvíða og ótta við smit, en einnig hefur orðið aukning á símtölum í hjálparsíma Rauða krossins vegna einmannaleika. Þá er hætt við að áfengisneysla aukist og að sögn lögreglu eru vísbendingar um að heimilisofbeldi sé einnig vaxandi. Þá er líklegt að áhrif faraldursins á samfélagið geti orðið langvinn. Það er því mjög mikilvægt að skoða hver þau eru og rannsaka þessa þætti á vandaðan hátt svo hægt sé að bregðast rétt við,“ segir Alma D. Möller landlæknir í fréttatilkynningu.

Rannsóknin hefur þegar fengið samþykki Vísindasiðanefndar og Persónuverndar og fjárstyrk frá ríkistjórninni að upphæð 1,5 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert