51 þúsund útlendingar búsettir á Íslandi

Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 820 …
Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 820 til landsins af alls 2.620 erlendum innflytjendum. AFP

Samtals bjuggu 366.130 manns á Íslandi í lok 1. ársfjórðungs 2020, 188.040 karlar og 178.090 konur. Landsmönnum fjölgaði um 1.870 á ársfjórðungnum eða um 0,5%. Í lok fyrsta ársfjórðungs bjuggu 50.940 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 13,9% af heildarmannfjölda.

Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 234.400 manns en 131.730 utan þess.

Alls fæddust 1.080 börn á 1. ársfjórðungi 2020, en 620 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.410 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 40 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.450 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 140 manns á 1. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 260 íslenskir ríkisborgarar af 550 alls. Af þeim 1.170 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 390 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (180), Noregi (60) og Svíþjóð (80), samtals 320 manns af 510. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 820 til landsins af alls 2.620 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 220 erlendir ríkisborgarar til landsins. Í lok fyrsta ársfjórðungs bjuggu 50.940 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 13,9% af heildarmannfjölda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert