Framhald verkfallsaðgerða samþykkt

Allir félagsmenn Eflingar hjá sveitarfélögunum fimm munu leggja niður störf …
Allir félagsmenn Eflingar hjá sveitarfélögunum fimm munu leggja niður störf ótímabundið á hádegi þriðjudaginn 5. maí. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun félagsmanna Eflingar hjá Kópavogi, Seltjarnarnesbæ og fleiri sveitarfélögum er lokið og var verkfallsboðun samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, að því er segir í tilkynningu frá Eflingu. Að óbreyttu hefst verkfall á hádegi þriðjudaginn 5. maí.

89% þeirra sem greiddu atkvæði voru samþykkir verkfallsboðun í grunnskólum og 88% voru samþykkir verkfallsboðun á vinnustöðum öðrum en grunnskólum. 6% þeirra sem greiddu atkvæði voru á móti verkfallsboðun bæði í grunnskólum og á öðrum vinnustöðum. Álíka fjöldi tók ekki afstöðu. Samtals greiddu 65% þeirra sem voru á kjörskrá atkvæði.

Sveitarfélögin sem um ræðir eru Seltjarnarnesbær, Kópavogsbær, Mosfellsbær, Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus. Krafa félagsmanna Eflingar sem þar starfa er að gerður verði samningur um sambærilegar kjarabætur og þær sem eru í samningum Eflingar við Reykjavíkurborg og ríkið. Engar kröfur umfram það eru gerðar, að því er segir í tilkynningu.

Samninganefnd frestaði verkfallsaðgerðum meðan kórónuveirufaraldurinn stóð sem hæst en gaf út að gengið yrði til atkvæða á ný um framhald verkfalls eftir páska. Allir félagsmenn Eflingar hjá sveitarfélögunum fimm munu leggja niður störf ótímabundið á hádegi þriðjudaginn 5. maí, sama dag og samkomubann verður rýmkað.

„Þetta eru magnaðar niðurstöður. Þær sýna ótrúlegt hugrekki, baráttuvilja og samstöðu okkar fólks. Láglaunafólk ætlar að fá viðurkenningu á því að samfélagið kemst ekki af án þeirra. Veirufaraldur eða ekki – Eflingarfólk lætur ekki kúga sig til hlýðni,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert