Engar hrefnuveiðar áformaðar í ár

Hrafnreyður KÓ var notuð til hrefnuveiða í nokkur ár.
Hrafnreyður KÓ var notuð til hrefnuveiða í nokkur ár. Ljósmynd/Sigurður Ægisson

Ekki er útlit fyrir að hrefnuveiðar verði stundaðar við landið í sumar frekar en á síðasta ári.

Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri IP-dreifingar, segir að helstu miðum í Faxaflóa hafi verið lokað með reglugerð sjávarútvegsráðherra og fleira hafi verið gert til að gera hrefnuveiðimönnum erfitt fyrir. Verður þetta því annað árið í röð sem engar hvalveiðar verða við landið.

Báturinn Hrafnreyður KÓ, núna Halla ÍS, stundaði hrefnuveiðar framan af sumri 2018 á vegum IP-dreifingar og veiddust þá sex dýr. Síðan hafa hrefnuveiðar ekki verið stundaðar og engin starfsemi er lengur á vegum fyrirtækisins í Hafnarfirði þar sem hrefnan var unnin. ,,Ég sé það ekki gerast að við förum aftur á hrefnuveiðar, ætli þessum kafla sé ekki lokið,“ segir Gunnar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert