Hjúkrunarfræðingar felldu kjarasamninginn

Hjúkrunarfræðingar hafa fellt kjarasamninginn sem var undirritaður 10. apríl.
Hjúkrunarfræðingar hafa fellt kjarasamninginn sem var undirritaður 10. apríl. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hjúkrunarfræðingar felldu kjarasamning sem gerður hafði verið milli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins. Nokkuð mjótt var á munum, því 45,98% vildu samninginn en 53,02% höfnuðu honum.

Atkvæðagreiðslan fór fram dagana 20. apríl til 29. apríl, en á kjörskrá voru 2.859, eða þeir hjúkrunarfræðingar sem fengið höfðu laun samkvæmt kjarasamningi félagsins við ríkið á tímabilinu apríl 2019 til mars 2020.

Alls tóku 2.288 þátt í kosningunum eða 80,03%.

Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já sögðu 1.052 eða 45,98%
Nei sögðu 1.213 eða 53,02%
Ég tek ekki afstöðu 23 eða 1,01%

Frá undirritun samningsins fyrr í mánuðinum. Nú hafa hjúkrunarfræðingar fellt …
Frá undirritun samningsins fyrr í mánuðinum. Nú hafa hjúkrunarfræðingar fellt hann. mbl.is/Íris
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert