„Þetta verða svörtustu mánaðamótin í sögu verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Hópuppsögn Icelandair, þar sem rúmlega 2.000 starfsmönnum verður sagt upp frá mánaðamótum, er sú stærsta í sögunni.
Auk þess hafa Vinnumálastofnun borist tilkynningar um uppsagnir frá átta fyrirtækjum fyrir hádegi í dag. Undir það falla 265 manns þar af 250 í ferðatengdri starfsemi.
Ragnar Þór segir að einhverjum hundruðum félagsmanna VR hafi verið sagt upp í gær og þegar upp verði staðið um mánaðamót verði talan komin vel á annað þúsund.
„Við erum að fá tilkynningar um hópuppsagnir á færibandi,“ segir Ragnar Þór.
Hann segir VR aðstoða félagsmenn í einu og öllu þegar þeim er sagt upp eða þegar fyrirtæki þar sem þeir starfa verður gjaldþrota.
„Það er gríðarlegt álag á skrifstofunni, mikið hringt inn og margir að spyrja og kanna sinn rétt. Við aðstoðum okkar félagsmenn í einu og öllu.“