Olíumengun innan hafnar í Eyjum

Olíuslikjan sást greinilega í höfninni í gær. Meiri olíubrák en …
Olíuslikjan sást greinilega í höfninni í gær. Meiri olíubrák en hér sést var innst í höfninni, að sögn sjónarvotts. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

„Við reynum alltaf að bregðast við ef vart verður við olíu í höfninni,“ sagði Ólafur Þór Snorrason, hafnarstjóri í Vestmannaeyjum og framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs bæjarins. Olíuslikja þakti yfirborð stórs hluta Vestmannaeyjahafnar í gær, eins og myndin ber með sér.

Olíumengun í höfninni og á rúmsjó við suðurströndina hefur valdið því að olíublautir fuglar hafa drepist, en sumum hefur tekist að bjarga. Í gildi er viðbragðsáætlun vegna bráðamengunar innan hafnarinnar, í samræmi við gildandi reglugerð. Viðbrögð ráðast af umfangi mengunarinnar. M.a. er reynt að fella olíuna út með sérstökum efnum, að því er fram kemur í umfjöllun um mengun þessa í Morgunblaðinu í dag.

Ólafur sagði að ef olía færi í höfnina væri það venjulega gasolía eins og sú sem er notuð til að knýja skip. „Við höfum ekki orðið varir við neina svartolíu innan hafnar. Venjulega kemur þetta úr bátum þegar verða einhver slys við áfyllingu eða vegna bilunar,“ sagði Ólafur. „Það er mjög hvimleitt þegar þetta kemur fyrir. Við reynum allt sem við getum til að halda þessu í góðu standi.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert