Samfylkingin skiptir um merki

Nýtt merki Samfylkingarinnar.
Nýtt merki Samfylkingarinnar.

Samfylkingin hefur tekið í notkun nýtt merki. Markmiðið með breytingunni er að færa myndrænt efni Samfylkingarinnar inn í nútímann með merki sem er í senn sveigjanlegt og klassískt, eins og segir á vef stjórnmálaflokksins.

Merkið er sagt vísa í rauða hringinn eða kúluna sem flestir tengi við flokkinn, en rákirnar tákni gagnsæi.

Hugsmiðjan útfærði merkið fyrir flokkinn, sem var svo samþykkt á sameiginlegum fundi framkvæmdastjórnar, stjórnar og þingflokks Samfylkingar og í kjölfarið kynnt formönnum aðildarfélaga Samfylkingarinnar.

„Merkið er lifandi og sveigjanlegt. Það býður þannig upp á hreyfingu á stafrænum miðlum og er þá til dæmis hægt að nota sem S þegar það hentar. Hringurinn er þó aðal merki flokksins. Ný heimasíða flokksins mun svo líta dagsins ljóss á næstu dögum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert