Torgið mun taka miklum breytingum

Svona er umhorfs í dag.
Svona er umhorfs í dag. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Haldið verður áfram að fegra útivistar- og torgsvæðin í Mjódd í sumar. Torgið sem er á milli Sambíóanna, Landsbankans og Þangbakka 10 er næst á dagskrá. Torgið mun taka miklum breytingum en um er að ræða annan áfanga af þremur á þessum torgsvæðum í Mjóddinni.

Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er 50 milljónir króna. Hönnunarvinna við þriðja áfanga stendur nú yfir.

Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. 

Áhersla er á aukinn gróður og grassvæði. Lýsing á bæði …
Áhersla er á aukinn gróður og grassvæði. Lýsing á bæði að auka öryggi fólks og lífga upp á svæðið. Bekkir verða þar sem mesta sólin er og hægt verður að tylla sér niður. Teikning/Reykjavíkurborg

Þar segir, að áhersla sé á aukinn gróður og grassvæði. „Skemmtileg lýsing bæði eykur öryggi fólks og lífgar upp á svæðið. Bekkir verða þar sem mesta sólin er og hægt verður að tylla sér niður. Hjólabogar verða settir upp til að mæta þörfum hjólandi vegfarenda.“

Þá segir, að fyrsti áfangi, torgið fyrir framan Breiðholtskirkju, á milli kirkjunnar og Þangbakka 8-10, verði tilbúið eftir um tvær vikur og verður spennandi að sjá umbreytinguna á fullkláruðu torgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert