Teknir með 130 plöntur, vopn og fjármuni

mbl.is/Eggert

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í heimahúsi í Hafnarfirði í vikunni. Lagt var hald á um 130 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Við húsleit tók lögreglan enn fremur í sína vörslu vopn og fjármuni, sem hún telur vera tilkomna vegna fíkniefnasölu.

Húsráðendur, tveir karlar á þrítugsaldri, voru handteknir í þágu rannsóknarinnar. Málið telst upplýst, að því er lögreglan greinir frá. 

Hún minnir á upplýsingasíma lögreglu 800-5005.

„Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert