Ræða nýjan kjarasamning starfsmanna á hjúkrunarheimilum

Hrafnista í ReykjavíkÍ viðræðunum semur Efling fyrir hönd u.þ.b. 1800 …
Hrafnista í ReykjavíkÍ viðræðunum semur Efling fyrir hönd u.þ.b. 1800 starfsmanna á hjúkrunarheimilum. SFV fer með samningsumboð gagnvart Eflingu fyrir hönd fjölda hjúkrunarheimila á félagssvæði Eflingar, til að mynda Grund, Hrafnistu, Eir og fleiri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrsti formlegi samningafundurinn um endurnýjun kjarasamnings milli Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) fór fram í gær. 

Í viðræðunum semur Efling fyrir hönd u.þ.b. 1800 starfsmanna á hjúkrunarheimilum. SFV fer með samningsumboð gagnvart Eflingu fyrir hönd fjölda hjúkrunarheimila á félagssvæði Eflingar, til að mynda Grund, Hrafnistu, Eir og fleiri.

Krafa Eflingar í viðræðunum er um leiðréttingu sambærilega þeirri sem náðst hefur fram gagnvart Reykjavíkurborg, Ríkinu og Faxaflóahöfnum, að því er segir í tilkynningu frá stéttarfélaginu. 

„Rétt eins og hjá borginni, ríkinu og sveitarfélögunum er hér um að ræða hóp mestmegnis kvenna sem hafa búið við lág laun, undirmönnun og viðvarandi álag árum saman. Kórónuveirufaraldurinn hefur sýnt öllum hversu algjörlega ómissandi þessi hópur er. Krafa okkar um leiðréttingu er nákvæmlega sú sama og hjá öðrum hópum í sömu stöðu. Eftir allt sem á undan er gengið getur varla annað verið en að gengið verði að henni,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert