Fórna ekki grundvallarréttindum á einu bretti

Flugvélar Icelandair.
Flugvélar Icelandair. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flugfreyjufélag Íslands segir Icelandair stilla stéttarfélögum upp við vegg vegna stöðunnar sem er uppi vegna kórónuveirunnar.

Fram kemur í tilkynningu að Icelandair reyni að gera stéttarfélög ábyrg fyrir stöðunni og þeirri áskorun að skapa fyrirtækinu rekstrargrundvöll til framtíðar með því að umturna gildandi kjarasamningi og samþykkja mikla kjaraskerðingu til framtíðar.

„Flugfreyjufélagið hefur ekki verið tilbúið að fórna á einu bretti grundvallarréttindum í kjarasamningi, sem tekið hefur áratugi að berjast fyrir, vegna þeirrar tímabundnu stöðu sem uppi er,“ segir í tilkynningunni.

Bent er á að starf flugfreyja og flugþjóna sé ekki hálaunastarf. Meðallaun félagsmanna með áratuga starfsreynslu séu talsvert undir meðallaunum í landinu.

Einnig kemur fram að flugfreyjur og flugþjónar hafi verið án kjarasamnings í eitt og hálft ár og því ekki notið neinna kjarabóta ólíkt flestum á vinnumarkaði. Engu að síður hafi Flugfreyjufélagið boðið Icelandair tilslakanir á kjarasamningi félagsmanna meðan mestu erfiðleikarnir ganga yfir.

Nefnt er að um miðjan apríl hafi það lagt fram tilboð um langtímasamning með miklum tilslökunum. „Icelandair hafnaði þessu tilboði og hefur krafist tugprósenta launalækkana og skerðingar á réttindum flugfreyja/-þjóna til frambúðar.“

Tilkynningin í heild sinni: 

„Frá því kórónuveiran lamaði allt flug í mars hefur Flugfreyjufélag Íslands leitað allra leiða til að koma til móts við Icelandair til að hjálpa fyrirtækinu í vandræðum þess. Flugfreyjur/-þjónar hafa verið án kjarasamnings í eitt og hálft ár, og því ekki notið neinna kjarabóta ólíkt flestum á vinnumarkaði, en engu að síður hefur Flugfreyjufélagið boðið Icelandair tilslakanir á kjarasamningi félagsmanna meðan mestu erfiðleikarnir ganga yfir.

Þegar um miðjan apríl lagði Flugfreyjufélagið fram tilboð til Icelandair um langtímasamning sem fól í sér verulegar tilslakanir, aukinn sveigjanleika og lengri vinnutíma. Slíkar tilslakanir komu verulega til móts við kröfur um fyrirsjáanleika og hefðu haft umtalsverðar kostnaðarlækkanir í för með sér fyrir flugfélagið en að sama skapi kjaraskerðingu fyrir félagsmenn. Icelandair hafnaði þessu tilboði og hefur krafist tugprósenta launalækkana og skerðingar á réttindum flugfreyja/-þjóna til frambúðar.

Starf flugfreyja/-þjóna er ekki hálaunastarf. Meðallaun félagsmanna með áratuga starfsreynslu eru talsvert undir meðallaunum í landinu. Icelandair stillir nú stéttarfélögum upp við vegg og reynir að gera þau ábyrg fyrir stöðunni og þeirri áskorun að skapa fyrirtækinu rekstrargrundvöll til framtíðar með því að umturna gildandi kjarasamningi og samþykkja mikla kjaraskerðingu til framtíðar.

Flugfreyjufélagið hefur ekki verið tilbúið að fórna á einu bretti grundvallarréttindum í kjarasamningi, sem tekið hefur áratugi að berjast fyrir, vegna þeirrar tímabundnu stöðu sem uppi er.“

Þekkt er að á krepputímum sé vegið að kjörum og réttindum vinnandi fólks. Gegn slíku mun Flugfreyjufélag Íslands standa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert