Söfnun blóðsýna fyrir mótefnamælingu hafin

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.

Hafin er söfnun blóðsýna hér á landi til að meta útbreiðslu mótefna gegn SARS-CoV-2, kórónuveirunnar sem veldur sjúkdómnum Covid-19. Aðeins er safnað blóðsýnum frá einstaklingum sem koma í blóðrannsóknir af öðrum ástæðum sem stendur og ekki er verið að safna sýnum frá einstaklingum sem hafa ekki aðra ástæðu til blóðtöku á þessu stigi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni og birt er á heimasíðu landlæknis.

Sýkla- og veirufræðideild Landspítala er byrjuð að mæla mótefni gegn veirunni og er farin að taka á móti blóðsýnum, en beiðni þarf þá að koma frá lækni.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í síðustu viku að tilgangur söfnunarinnar væri að fá góða mynd af því hversu stór hluti þjóðar­inn­ar hafi sýkst á und­an­förn­um vik­um.

Sagði hann þá að ekki væri um eig­in­lega vís­inda­rann­sókn að ræða held­ur könn­un á veg­um sótt­varna­lækn­is sem muni hafa þýðingu við að ákv­arða sótt­varn­aráðstaf­an­ir í sam­fé­lag­inu á næstu vik­um og mánuðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert