Kvikmynd um Fálkana

Frank Frederickson og fjölskylda verða á ný í sviðsljósinu.
Frank Frederickson og fjölskylda verða á ný í sviðsljósinu.

Snorri Þórisson hjá kvikmyndafyrirtækinu Pegasus undirbýr ásamt forsvarsmönnum kanadíska fyrirtækisins Buffalo Gal Pictures í Winnipeg gerð kvikmyndar um íshokkílið Fálkanna en beðið er eftir grænu ljósi frá Kvikmyndasjóði Íslands. Rætt hefur verið við Wayne Gretzky, einn besta hokkíleikmann sögunnar, til að vera verndari verksins. „Gangi fjármögnun eftir hér geta tökur hafist á næsta ári og frumsýning yrði þá um ári síðar,“ segir Snorri.

Ísknattleikur var fyrst keppnisgrein á Ólympíuleikum í Antwerpen í Belgíu 1920. Fálkarnir frá Winnipeg kepptu fyrir hönd Kanada og liðið, sem var skipað fyrstu kynslóð Kanadamanna af íslenskum ættum að einum manni undanskildum, kom, sá og sigraði.

David Square sendi frá sér bókina When Falcons Fly 2007 og skömmu síðar gerði Snorri samning við hann um að styðjast við bókina við gerð kvikmyndar. Ekki tókst að gera kvikmynd í fyrstu tilraun. Snorri segir að verkefnið hafi verið geymt en ekki gleymt. „Mér fannst það svo spennandi og tók því þráðinn upp aftur nokkrum árum síðar,“ segir hann. „Þótt kvikmyndin sé um stráka sem hafa brennandi áhuga á að leika ísknattleik er þetta ekki mynd um ísknattleik, heldur að þurfa að sigrast á félagslegu óréttlæti í nýju heimalandi.“

Kostar liðlega milljarð

Vinnuheiti myndarinnar er Falcons Forever eða Fálkar að eilífu. „Þetta er kvikmynd um „strákana okkar“ sem unnu gullverðlaun á Ólympíuleikunum fyrir einni öld,“ segir Snorri. „Það var um krákustíg að fara vegna þess að lengi vel fengu þeir ekki aðgang að liðum í Winnipeg því þar var litið niður á Íslendinga á þessum tíma. Eftir að ég fékk aftur réttinn á bókinni samdi ég við kanadískan handritshöfund sem skrifaði fyrsta handrit sem ég varð því miður að segja skilið við vegna þess að útkoman var týpísk ísknattleiksmynd en ekki um persónur og leikendur, sem alltaf er áhugaverðast í kvikmyndum.“

Snorri Þórisson.
Snorri Þórisson.

Hann segist því hafa leitað annað en allt farið á sama veg. Í kjölfarið hafi hann ásamt Nínu Petersen skrifað grunn að handriti og fengið handritshöfundinn Shawn Linden í Winnipeg til að fullkomna verkið. „Talsmenn Buffalo Gal Pictures í Winnipeg eru mjög ánægðir með útkomuna,“ segir hann.

Óskar Þór Axelsson hefur verið fenginn til að leikstýra kvikmyndinni. Frank Frederickson (Sigurður Franklín Jónsson), fyrirliði Fálkanna, er aðalpersónan og Snorri segir að Frank og fjölskylda hans verði þungamiðja kvikmyndarinnar. Gert sé ráð fyrir að Jóhannes Haukur Jóhannesson og Sara Dögg Ásgeirsdóttir leiki foreldra hans og Elín Sif Halldórsdóttir systur hans.

Áætlaður framleiðslukostnaður er liðlega milljarður íslenskra króna, sem er mjög mikið miðað við íslenska kvikmynd. „Að koma þessu á koppinn hefur verið langt og dýrt ferli og ekki margir fjárfestar sem setja peninga í menningu og kvikmyndir, en Róbert Wessman hefur stutt okkur vel.“ Spurður hvort öll sund lokist án stuðnings KMÍ segir Snorri: „Ég hef alltaf verið frekar bjartsýnn og trúi að KMÍ veiti þessu verki brautargengi en ef einar dyr lokast þá opnast aðrar.“

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 13. maí. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert