Atkvæðagreiðslu lýkur fyrir hluthafafund

Ljósmynd/Icelandair

Icelandair Group og Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafa gert nýjan kjarasamning á milli félaganna til 30. september 2025. Samningurinn er í samræmi við þau markmið sem lagt var upp með um að auka vinnuframlag og sveigjanleika verulega, að því er segir í tilkynningu. Áður hafði verið samið við flugvirkja hjá Icelandair en enn er ósamið við flugfreyjur. 

Í samtali við mbl.is segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, að samningurinn verði lagður fyrir félagsmenn FÍA í dag og atkvæðagreiðslan standi yfir í sjö daga. Henni lýkur þá í tæka tíð fyrir hluthafafund 22. maí, eins og forstjóri Icelandair hafði sagt að yrði nauðsynlegt.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir í tilkynningu: „Við erum mjög ánægð með að langtímasamningur við flugmenn sé í höfn. Þetta er stórt skref til að tryggja samkeppnishæfni félagsins og veigamikill þáttur í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Gerðar voru verulegar breytingar á samningnum sem tryggja aukið vinnuframlag flugmanna og gefa félaginu aukinn sveigjanleika til þróunar á leiðakerfi Icelandair. Með þessu eru flugmenn að leggjast á árarnar með félaginu til framtíðar.“

Jón Þór segir í tilkynningu:„Félag íslenskra atvinnuflugmanna gerði í nótt tímamótasamning við Icelandair Group. Flugmenn eru stoltir af því að hafa náð markmiðunum sem lagt var upp með sem eykur enn á samkeppnishæfni Icelandair. Samningurinn tryggir að félagið er vel í stakk búið til að sækja fram á hvaða markaði sem er til langrar framtíðar og nýta þau tækifæri sem sannarlega munu skapast.“

Eina félagið sem viðskipti hafa orðið með í Kauphöll Íslands í morgun er Icelandair en almenn viðskipti hefjast þar klukkan 10. Alls eru viðskiptin átta talsins og hafa bréf félagsins hækkað um 4,2% en síðustu viðskipti voru á genginu 1,75.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert