Ísland verði fyrirmynd í endurreisninni

Drífa Snædal, forseti Alþýðusambandsins.
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambandsins. mbl.is/Ófeigur

Ísland nýtur þess nú að vera fyrirmynd annarra þjóða í heilsuvörnum. Við skulum líka vera fyrirmynd annarra þjóða í endurreisninni þar sem ákvarðanir eru teknar fyrir fjöldann en ekki hina fáu.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í föstudagspistli Drífu Snædal, forseta ASÍ. 

Þar fjallar hún um að rétta leiðin úr þessari kreppu sé að styrkja framfærslu almennings, tryggja húsnæðisöryggi og lífsgæði til framtíðar. Tímapunkturinn sé ekki réttur til að skera niður, skerða lífskjör, selja ríkiseignir eða draga úr styrk innviða.

Drífa bendir á að þessi skilaboð sé að finna í áherslu ASÍ sem kynntar voru í gær. Treysta verði réttindi á vinnumarkaði og auka lífsgæði og öryggi fyrir fjöldann en ekki fáa.

Niðurstaða þessarar kreppu má ekki verða brunaútsala á ríkiseignum eða að almenningi sé gert að herða sultarólina – þá verður kreppan dýpri og erfiðari en hún þarf að vera,“ skrifar Drífa.

Við skulum byggja upp fjölbreyttara atvinnulíf en verið hefur til að verja okkur betur fyrir áföllum framtíðar. Sú vegferð að treysta atvinnuuppbyggingu með aukinn matvælaframleiðslu, nýsköpun, tækni og grænum störfum er orðin aðkallandi og við þurfum menntun sem styður við þá uppbyggingu. Við verðum að koma í veg fyrir að kreppan auki kulnun og örorku með því að flýta styttingu vinnuvikunnar og byrja á þeim stéttum sem sinna líkamlega og andlega erfiðum störfum á lægstu laununum,“ bætir hún við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert