Hvidbjørnen og Triton við Faxagarðinn

Dönsku varðskipin eru fastagestir í Reykjavíkurhöfn.
Dönsku varðskipin eru fastagestir í Reykjavíkurhöfn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dönsku varðskipin Hvidbjørnen og Triton eru nú bæði í Reykjavíkurhöfn og liggja við Faxagarð.

Fátítt er að fleiri en eitt af dönsku skipunum sé hér inni í einu, en þau annast gæslu og eftirlit við Færeyjar, Grænland og víðar á yfirráðasvæði Dana.

Heimahöfn skipanna er Fredrikshavn á Jótlandi, en áhafnaskipti fara gjarnan fram á Íslandi og hvert úthald er um tveir mánuðir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert