Sumaráætlun Strætó tekur gildi á morgun

Framdyr strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu verða enn lokaðar og farþegar munu …
Framdyr strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu verða enn lokaðar og farþegar munu áfram ganga inn um mið- eða aftari dyr vagnsins. Ljósmynd/Aðsend

Strætó á höfuðborgarsvæðinu mun aka samkvæmt sumaráætlun frá og með morgundeginum, 18. maí. Það þýðir að þjónustuskerðingunni vegna kórónuveirufaraldursins er lokið, að því er fram kemur í tilkynningu frá Strætó.

Allar leiðir hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu munu aka samkvæmt óskertri áætlun fyrir utan leiðir 18, 24 og 28, en þær munu áfram aka á 30 mínútna fresti í sumar. Þá mun næturakstur úr miðbænum um helgar áfram liggja niðri og verður þjónusta á landsbyggðinni áfram skert þar til annað verður tilkynnt.

Framdyr strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu verða enn lokaðar og farþegar munu áfram ganga inn um mið- eða aftari dyr vagnsins. Innra rými strætisvagnanna verður áfram skipt upp í tvo hluta. Borði er strengdur yfir fremsta hluta vagnanna til þess aðskilja svæði vagnstjóra og svæði farþega. Mælt er með því að greiða fargjaldið með Strætókorti eða Strætóappinu.

Áfram eru ítrekuð þau tilmæli að viðskiptavinir sýni varkárni í samskiptum og umgengni, að þeir þvoi hendur og spritti reglulega, hósti og hnerri í olnbogabót, takmarki snertingar á snertifleti og ferðist alls ekki með Strætó ef grunur leikur á smiti.

Hámarksfjöldi farþega um borð í strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu verður áfram 30 manns. Hópferðir skólabarna og skipulagðar ferðir í íþrótta- og tómstundastarfi eru undanþegnar þessum fjöldatakmörkunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert