Stefán ráðinn framkvæmdastjóri lækninga

Stefán Yngvason læknir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalund …
Stefán Yngvason læknir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalund frá 1. júní nk. mbl.is/Árni Sæberg

Stefán Yngvason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalund frá 1. júní. Stefán hefur verið starfandi framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi og gegnt starfi formanns starfsstjórnar Reykjalundar frá því í nóvember eftir að deilur komu upp innan stofnunarinnar. 

Stefán er sérfræðingur í endurhæfingarlækningum og hefur starfað við endurhæfingarlækningar frá árinu 1988. Stefán á að baka langan feril sem endurhæfingarlæknir og stjórnandi innan endurhæfingar bæði í Svíþjóð og á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu. 

Hann hefur komið að þróun starfsemi á flestum sviðum í faginu á undanförnum áratugum. Stefán var við stjórnvölinn við uppbyggingu endurhæfingardeildar á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit.  Hann hefur verið yfirlæknir á Grensásdeild Landspítala á miklum umbrota- og breytingatímum í starfsemi spítalans. Ásamt því var hann sviðstjóri endurhæfingarsviðs spítalans þegar sameining Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur varð að veruleika. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert