Meta þurfi stöðu æðstu stjórnenda Icelandair

Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.
Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þær fréttir sem berast frá Icelandair eru hreint út sagt fáránlegar. Að félag sem er í meirihlutaeigu margra lífeyrissjóða gangi fram gegn félagsmönnum stéttarfélaga með jafn ósvífnum hætti er fráleitt.“

Þetta ritar Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands og 1. varaforseti Alþýðusambands Íslands.

Kristján segir að krafan um að stofna verkalýðsfélag sem sé fyrirtækinu þóknanlegt geti ekki hafa komið frá lífeyrissjóðunum, og að sé hún komin frá öðrum eigendum sé ljóst að frekari aðkoma lífeyrissjóða sé sett í vonlausa stöðu.

Þá veltir Kristján fyrir sér samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins og að ljóst sé að endurmeta þurfi stöðu æðstu stjórnenda Icelandair í kjölfarið ef fyrirtækið kemst í gegnum hremmingarnar og segir ljóst að stíga þurfi risastór skref til að losna við atvinnurekendur úr stjórnum lífeyrissjóðanna ef krafa þessi sé komin frá sjóðunum. 

„Það er auðvitað þannig að launafólk á að stýra lífeyrissjóðum að öllu leyti, nú er kominn tími til að við náum tökum á okkar eignum.

Þessi viðhorf, að velja hentug verkalýðsfélög sem hlýða stjórnendum fyrirtækjanna, hafa heyrst frá fulltrúum fyrirtækja í gegnum tíðina og væri skelfilegt ef þessir sömu fulltrúar eru farnir að beita slíkum viðhorfum inni í fjárfestingum sem við, sjóðfélagar lífeyrissjóðanna, eigum hlut í.“

Tekið skal fram að Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hefur sent Flugfreyjufélagi Íslands yfirlýsingu þar sem fram kemur að Icelandair sé ekki í viðræðum við önnur stéttarfélög.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert