Reynt að „reka fleyg í samstöðu félagsmanna“

Samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins.
Samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

ASÍ mótmælir harðlega því sem er lýst í fréttum Morgunblaðsins og Fréttablaðsins af viðræðum Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands. Segir í yfirlýsingu ASÍ að svo virðist sem tilgangurinn sé sá einn að hafa áhrif á starfsemi FFÍ og reka fleyg í samstöðu félagsmanna.

Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir framgöngu Icelandair í samningaviðræðum við flugfreyjur hafa verið með ólíkindum.

„Alþýðusamband Íslands mótmælir harðlega því sem lýst er í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í dag sem hugsanlegum viðbrögðum Icelandair í kjaradeilu félagsins við Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ). Í báðum tilvikum er vísað til heimilda innan Icelandair. Samkvæmt fréttum Morgunblaðsins skoðar Icelandair möguleika á að stofna nýtt stéttarfélag flugfreyja og samkvæmt Fréttablaðinu hyggst Icelandair láta reyna á forgangsréttarákvæði kjarasamnings FFÍ fyrir félagsdómi náist ekki samningur.

Þessar vangaveltur eru settar eru fram á mjög viðkvæmu stigi samningaviðræðna og virðist tilgangurinn sá einn að hafa áhrif á starfsemi FFÍ og reka fleyg í samstöðu félagsmanna. Þær byggja einnig á mikilli vanþekkingu á íslenskri og alþjóðlegri vinnulöggjöf og kjarasamningi FFÍ.

Alþýðusamband Íslands áréttar að stéttarfélög eru félög launafólks sem njóta verndar í stjórnarskrá og atvinnurekendum er óheimilt að skipta sér af. Icelandair getur ekki sjálft stofnað til eða haft frumkvæði að stofnun stéttarfélaga. Við slíkt atferli verður ekki unað í íslensku samfélagi og Icelandair hollt að hafa í huga að aðildarfélög ASÍ hafa heimildir til þess að veita FFÍ stuðning í yfirstandandi kjaradeilu með boðun samúðarvinnustöðvana og fulla heimild til þess að verja réttarstöðu sína gegn ólögmætum árásum.

Raungerist fyrrnefndar vangaveltur á Icelandair ekkert tilkall til stuðnings úr opinberum sjóðum eða viðbótarhlutafjár úr lífeyrissjóðum launafólks. ASÍ krefst þess að stjórnvöld stígi fram og taki af öll tvímæli um að þau hyggist ekki styðja ólögmætt og ósiðlegt athæfi Icelandair,“ segir í yfirlýsingunni. 

Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands.
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Í fréttatilkynningu er haft eftir Drífu Snædal að flugfreyjur hafi verið samningslausar lengi. „Þær hafa staðið sameinaðar og komið fram af heilindum í kjaraviðræðum. Að mæta þeim á þessu stigi samningaviðræðna með hótunum um að ganga gegn lögum og leikreglum á íslenskum vinnumarkaði er með öllu óviðunandi.

Framganga Icelandair í samningaviðræðum við flugfreyjur hefur verið með ólíkindum og er til þess fallin að draga úr almennu trausti í garð þessa rótgróna flugfélags. Þetta er ekki flugfélagið okkar allra sem býður okkur velkomin heim. Við munum ekki sætta okkur við aðferðir sem á ensku eru kallaðar union busting og ganga út á að grafa undan samstöðu launafólks og eyðileggja verkalýðsfélög. Verkalýðshreyfingin mun ekki sitja með hendur í skauti andspænis slíkum aðgerðum,“ segir Drífa Snædal í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert