Takmarkað aðgengi að Skógafossi

Skógaheiði. Bílastæði verður nýtt sem vinnusvæði í ferðamannaleysinu.
Skógaheiði. Bílastæði verður nýtt sem vinnusvæði í ferðamannaleysinu. Ljósmynd/Umhverfisstofnun

Hafist verður handa í vikunni við að flytja malarefni í yfirborð á nýjum göngustíg á Skógaheiði með þyrlu.

Af öryggisástæðum verður lokað fyrir aðgengi að bílastæðinu sem og að Skógafossi sjálfum á meðan þyrlan er að störfum. Reiknað er með að verkið hefjist á föstudagsmorgun og taki fjóra til fimm daga.

Unnin hefur verið grófvinna og landmótum síðustu mánuði og styttist í verklok, en um er að ræða annan áfanga af þremur í uppbyggingu Umhverfisstofnunar á göngustígum á heiðinni. Að verki loknu verður hægt að virða fyrir sér fossaröð Skógaár á öruggan og sjálfbæran máta, segir í frétt á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Hingað til hefur verið gengið meðfram ánni á gömlum kindaslóðum og var svæðið verulega farið að láta á sjá sökum ágangs.

Til að koma malarefni í yfirborð hins nýja stígs þarf að flytja nokkur hundruð rúmmetra með þyrlu upp af láglendinu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert