Aðeins eitt háhitaverkefni í augsýn

Borun á nýrri háhitaholu fyrir Nesjavallavirkjun hefst um mánaðamótin. Myndin …
Borun á nýrri háhitaholu fyrir Nesjavallavirkjun hefst um mánaðamótin. Myndin er tekin af Þórvið borun í Hverahlíð á Hellisheiði. Ljósmynd/Orkuveitan

Flutningar standa nú yfir á Þór, bor Jarðborana, af Hellisheiði yfir á Nesjavelli. Þar stendur fyrir dyrum borverkefni fyrir Nesjavallavirkjun, en Sigurður Sigurðsson, forstjóri Jarðborana hf., segir líklegt að þetta verði síðasta háhitaholan sem boruð verði hér á landi í fyrirsjáanlegri framtíð.

Hann segir að síðustu þrjú ár hafi borinn verið notaður talsvert fyrir Orku náttúrunnar á Hellisheiði og Nesjavöllum. Nú sjái fyrir endann á þessum verkefnum og engin ákvörðun liggi fyrir um frekari verkefni hjá ON. Sömu sögu sé að segja um Landsvirkjun og HS Orku.

Öflugasti borinn til útlanda?

Sigurður segir að fyrirtækið sé á fullu að leita verkefna í Evrópu, meðal annars með þátttöku í útboðum í Bretlandi, Þýskalandi og Hollandi. Vonandi skili það árangri og þá verði borinn Þór, sem er öflugasti bor Jarðborana og eini háhitaborinn sem er hér á landi, fluttur í verkefni erlendis.

Í vetur gerðu Jarðboranir tæplega þriggja milljarða króna samning um verkefni á Asoreyjum. Þar verður borinn Óðinn notaður til að bora níu háhitaholur, 1.000-2.300 metra djúpar, og verður þar fram yfir mitt næsta ár. Einn bor fyrirtækisins, Týr, stendur á borstæði í Djíbútí og hefur lokið borun, en ekki hefur verið hægt að taka hann niður vegna veirufaraldursins. Minna verkefni bíður Jarðborana í landinu og verður væntanlega farið í það í haust þegar faraldurinn verður genginn niður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert