Lést eftir bruna á Akureyri

mbl.is/Sverrir

Karlmaðurinn sem var fluttur slasaður með sjúkraflugi eftir bruna í Hafnarstræti 37 á Akureyri í fyrrakvöld er látinn. Hann lést seinnipart gærdags á gjörgæsludeild Landspítala. Hann var 67 ára gamall.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Rafmagnstæki tekið til skoðunar

Vettvangsrannsókn á upptökum brunans fór fram í gær af tæknideild lögreglu. Meðal þess sem tekið verður til frekari skoðunar er rafmagnstæki.

Að öðru leyti er rannsóknin á frumstigi og ekki unnt að veita frekari upplýsingar.

Lögreglan vottar ættingjum hins látna djúpa samúð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert