17 gráður ef allt smellur saman

Kort/Veðurstofa Íslands

Fallegir dagar fram undan á Suður- og Vesturlandi í dag og á morgun, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

„Líklega verður létt háskýjabreiða að trufla sólina í dag en síður á morgun. Fyrir norðan og austan verður mun svalara en ágætlega bjart yfir í dag, enda ekki við háum hitatölum að búast þegar vindur stendur af hafi svona snemma sumars.

Hins vegar gætum við séð tölur þar sem best lætur suðvestan til upp undir 17 gráður, en þá þarf allt að smella saman.

Á sunnudag er svo lægð með allmyndarleg skil að nálgast landið og þá léttir til fyrir norðan og austan og hlýnar þar aftur en fer að rigna í öðrum landshlutum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Veðurhorfur næstu daga

Snýst í norðaustan 8-13 í dag og þykknar upp við ströndina, en bjartviðri S- og V-lands. Norðan 13-18 undir Vatnajökli í kvöld og smá væta A-lands. Hiti 4 til 16 stig um daginn, hlýjast á S-landi.

Á laugardag:

Norðan- og norðaustan 5-13 m/s og dálítil rigning eða slydda austast á landinu, annars skýjað með köflum, en bjartviðri SV-lands. Hiti frá 2 stigum NA-lands að 15 stig á S-landi.

Á sunnudag:
Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp, 10-15 m/s og rigning undir kvöld, en þurrt að kalla NA-lands. Hlýnandi veður fyrir norðan og austan.

Á mánudag:
Suðlæg átt með vætu víða á landinu, en úrkomulítið NA-til. Hiti 6 til 11 stig.

Á þriðjudag:
Vestlæg átt og víða dálítil væta, einkum þó V-til. Hiti víða 3 til 12 stig, mildast SA-lands.

Á miðvikudag:
Suðvestanátt með vætu á V-verðu landinu, en annars þurrt og milt veður. Hiti 6 til 11 stig.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga átt með vætu, en þurrt og hlýtt fyrir norðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert