Heimsóknarbann á bráðamóttöku

mbl.is/Kristinn Magnússon

Vegna tveggja metra reglu og hættu á yfirálagi á sóttvarnir hefur verið ákveðið að bráðamóttakan á Landspítala Fossvogi sé lokuð gestum nema í sérstökum undantekningartilfellum. Þetta gildir í óákveðinn tíma. Þetta kemur fram á vef Landspítalans. 

Börn yngri en 18 ára mega hafa með sér einn forráðamann á bráðamóttökunni.

Frá 18. maí hafa konur sem eiga bókaðan tíma í fósturgreiningu (ómskoðun) mátt hafa aðstandanda með sér í skoðuninni að því er fram kemur á vef Landspítalans. 

Eins konur sem eiga tíma í meðgönguvernd mega hafa aðstandanda með sér í viðtöl og skoðanir. Við beinum þeim tilmælum til kvenna að hugleiða vel þörfina á því og aðeins koma með aðstandanda með sér í viðtöl ef þeim finnst það mjög mikilvægt. Ekki er hægt að hafa aðstandanda með í dagannareftirlit á 22-B.

Konur sem fá tíma á bráðaþjónustu 22B mega hafa með sér aðstandanda í viðtal og skoðun en vegna þrengsla á sumum skoðunarstofum getur verið að aðstandandi verði beðinn að bíða á biðstofu á meðan skoðun fer fram. Aðstandendur þurfa því að vera viðbúnir því að víkja af deildinni óski starfsfólk eftir því. Það sama gildir um bráðakomur á meðgöngu- og sængurlegudeild 22-A og skoðanir á fæðingarvakt 23-B, utan afgreiðslutíma bráðaþjónustu.

Maki má vera hjá sængurkonu eftir fæðingu. Gert er ráð fyrir að maki haldi sig sem mest inni á stofu hjá konunni og fari ekki í sameiginleg rými.

Maki má gista, fær morgunmat og þarf að greiða gistigjald eins og hefur verið. Aðrar máltíðir þarf maki að kaupa sér í matsal LSH eða sjálfsala/kaffistofum. Ef maka vanhagar um eitthvað utan úr bæ má biðja aðstandendur um að koma með það til viðkomandi og afhenda það í anddyri kvennadeildar á 1. hæð.

Maki getur ekki dvalið á deildinni ef konan liggur með annarri konu á stofu en getur komið í heimsókn milli kl. 16:00 og 19:00 í að hámarki eina klukkustund.

Aðstandandi getur ekki fylgt konum sem þurfa innlögn á meðgöngu og í aðdraganda fæðingar, s.s. vegna gangsetningar, verkjameðferðar eða sérstaks eftirlits. Sama gildir um endurinnlagnir eftir fæðingu.

Samkvæmt reglum spítalans um heimsóknir frá 18. maí getur einn aðstandandi komið í heimsókn milli kl. 16:00 og 19:00 í að hámarki eina klukkustund. Hér er eingöngu átt við maka eða einn náin aðstandanda. Aðrar heimsóknir eru ekki leyfðar.

Einn aðstandandi getur verið hjá konu frá því hún er flutt á fæðingarstofu. Einn aðstandandi getur fylgt konu í keisara, hvort sem er bráða- eða valkeisari.

Eingöngu er hægt að leyfa einum aðstandanda að vera með konu í fæðingu, engar undantekningar verða leyfðar á því. Engar heimsóknir eru leyfðar á fæðingarvakt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert