Vinir og velunnarar Tómasar Magnúsar Tómassonar komu saman kl 17:00 í dag við Bítlaskóg í Svarfaðardal og vígðu fyrsta Tómasarlund landsins, en ætlunin er að koma á fót mörgum slíkum um allt land sem hvatningu og vitundarvakningu um að skógrækt og geðrækt fari vel saman.
Séra Tómas Hallgrímsson var prestur á Völlum í Svarfaðardal, en hann var forfaðir Tómasar Magnúsar sem var einn farsælasti upptökustjóri og tónlistarmaður landsins um árabil.
Meðal þeirra sem viðstaddir voru gróðursetninguna voru hjónin Þórarinn Eldjárn og Unnur Ólafsdóttir staðarhaldarar í Gullbringu, Jakob Frímann Magnússon forsprakki Stuðmanna, Eyþór Eðvarðsson fv. formaður Karlakórsins Fóstbræðra og Birna Rún Gísladóttir viðskiptafræðingur, en Jarún Júlía, dóttir hennar og Jakobs Frímanns, gróðursetti fyrstu trjáplöntuna í Tómasarlundi.
Að aflokinni gróðursetningunni var sunginn afmælissöngur Tómasi til heiðurs en hann hefði orðið 66 ára í dag.