Blaðamannafundur vegna kórónuveiru

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir verður að sjálfsögðu á sínum stað í …
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir verður að sjálfsögðu á sínum stað í dag ásamt Ölmu D. Möller landlækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni. mbll.is/Eggert

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar klukkan 14 í dag.

Þetta verður síðasti áætlaði upplýsingafundurinn vegna COVID-19 að svo stöddu. Boðað verður að nýju til funda í framtíðinni ef þurfa þykir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Alma D. Möller landlæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.

Gestir fundarins verða Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert