Ákærður fyrir árás með hamri

Árásin átti sér stað í apríl árið 2018 fyrir utan …
Árásin átti sér stað í apríl árið 2018 fyrir utan gistiskýlið við Lindargötu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás fyrir utan gistiskýlið við Lindargötu í Reykjavík í apríl 2018. Er honum í ákæru gefið að sök að hafa slegið annan mann nokkrum sinnum í höfuð og búk með hamri.

Samkvæmt ákæru hlaut sá sem fyrir árásinni varð skurð á höfði, marðist í andliti, á höndum og framhandleggjum, auk brjóstkassa og á lunga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert