Eldur í ruslagámi skammt frá Langholtsskóla

Eldur kom upp í ruslagámi skammt frá Langholtsskóla upp úr klukkan hálfsex í dag.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu tók örskamma stund að ráða niðurlögum eldsins.

Nokkrar tilkynningar bárust slökkviliðinu vegna eldsins, enda tré og grindverk nálægt gáminum. Betur fór en á horfðist því enginn eldur komst þangað.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert