Lægðirnar koma í röðum

Kort/Veðurstofa Íslands

Allkröpp lægð hreyfist þvert norðaustur yfir landið í dag með skúradembum og strekkingsvind. Næsta lægð er síðan í farvatninu en hún myndast úr lægðardragi, sem nálgast Hvarf, en tekur síðan stefnuna norðaustur yfir Grænlandshaf. Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands í morgunsárið.

„Allkröpp lægð hreyfist þvert norðaustur yfir landið í dag, en lægðinni fylgir óstöðugt loft með skúradembum eða rigningu og strekkingsvestanvindum, einkum á Suðausturlandi. Dregur þó heldur úr vindi og úrkomu upp úr hádegi, en suðvestlægari og skúraleiðingar með kvöldinu. Hitatölur frekar í lægri kantinum, mest 13 stig suðaustan til.

Næsta lægð er í farvatninu, en hún myndast úr lægðardragi, sem nálgast Hvarf, en tekur síðan stefnuna norðaustur yfir Grænlandshaf. Í fyrramálið verður farið að rigna eða súlda á suður- og vesturhluta landsins og bætir í vætuna þegar líður á daginn. Austan til helst þó þurrt að kalla og þar hlýnar heldur betur, með hita að 16 stigum þegar best lætur.

Útlitið fram yfir helgi er tvískipt: votviðrasamt á suðurhelmingnum, en þurrt að mestu og hlýtt fyrir norðan,“ segir á vef Veðurstofu Íslands. 

Veðurspáin fyrir næstu daga

Vestan og norðvestan 8-13 m/s og skúrir eða rigning, en 13-18 um tíma við SA-ströndina fram yfir hádegi. Hægari og minnkandi skúrir upp úr hádegi, suðvestlægari og skúraleiðingar í kvöld, en léttir til fyrir austan. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast SA til.

Á miðvikudag:

Suðvestan 10-18 m/s og rigning, hvassast NV til, en þurrt að kalla Austurlandi og Austfjörðum. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast fyrir austan.

Á fimmtudag:
Suðlæg átt, 5-13 m/s og dálítil rigning eða súld, en bjart með köflum á N- og A-landi. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast NA-lands.

Á föstudag:
Suðaustlæg átt, 8-15 m/s og rigning eða súld, en bjartviðri NA-lands. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast NA til.

Á laugardag:
Hæg sunnanátt og skúrir eða rigning, en yfirleitt léttskýjað NA-lands og áframhaldandi hlýindi.

Á sunnudag (hvítasunnudag):
Útlit fyrir hæga suðlæga átt, dálitlar skúrir í öllum landshlutum og kólnandi veðri.

Á mánudag (annan í hvítasunnu):
Líklega hægar breytilegar áttir, milt og þurrt að kalla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert