Benedikt Bogason kjörinn varaforseti Hæstaréttar

Benedikt Bogason, dómari við Hæstarétt Íslands og varaforseti.
Benedikt Bogason, dómari við Hæstarétt Íslands og varaforseti.

Á fundi dómara við Hæstarétt Íslands í dag fór fram kosning varaforseta fyrir tímabilið 27. maí til 31. desember á næsta ári. Var Benedikt Bogason kjörinn varaforseti.

Þorgeir Örlygsson er forseti réttarins.

Helgi Ingólfur Jónsson var áður varaforseti, en hann baðst lausnar frá störfum fyrr á árinu og er nú hættur sem dómari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert