Fimm sóttu um stöðu lögreglustjóra

Fimm umsóknir bárust um stöðu lögreglustjóra á Norðurlandi eystra sem auglýst var laus til umsóknar, en umsóknarfrestur rann út 25. maí. Hæfnisnefnd mun í framhaldinu meta umsækjendur.

Eftirtaldir sóttu um stöðuna: Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir, aðstoðarsaksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, Halldóra Kristín Hauksdóttir, lögmaður hjá Akureyrarbæ, Hreiðar Eiríksson, lögfræðingur hjá Fiskistofu, Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, og Sigurður Hólmar Kristjánsson, saksóknarfulltrúi og staðgengill lögreglustjóra á Norðurlandi vestra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert