Handtóku fjóra á byggingarsvæði í Garðabæ

mbl.is/​Hari

Fjórir karlmenn voru handteknir á byggingarsvæði í Garðabæ þegar lögregla var þar við vinnustaðaeftirlit í gær. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að grunur leiki á að mennirnir, sem allir eru erlendir ríkisborgarar, hafi fengið skráningu á grundvelli falsaðra vegabréfa. Því hafi þeir ekki tilskilin leyfi til að starfa hér.

Þeir voru færðir á lögreglustöð og yfirheyrðir, en við húsleitir í tengslum við málið var lagt hald á fölsuð vegabréf. Mönnunum er nú gert að sæta svokallaðri tilkynningaskyldu, auk þess sem Útlendingastofnun er upplýst um málið. Á vettvangi voru einnig höfð afskipti af tveimur öðrum mönnum, sem ekki höfðu heimild til vinnu, en þar var um að ræða hælisleitendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert