Lögreglan á Suðurnesjum hefur nú í fórum sínum veiðibúnað sem fannst meðal muna hjá karlmanni sem hafði stundað um nokkurt skeið að fara inn í bílskúra í Reykjanesbæ og láta greipar sópa. Lögregla lýsir eftir eigendum veiðibúnaðarins.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að maðurinn hafi í síðasta mánuði verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir umrædd brot, en hann mun hafa brotið af sér síðast í byrjun þessa árs.
Lögregla vill beina því til þeirra sem kunna að sakna veiðibúnaðar úr bílskúrum sínum í Reykjanesbæ að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum.